Jæja þessi tölva virðist ekki vilja senda í mína tölvu svo nú fáið þið þann heiður að fá að lesa þetta, góða skemmtun.
Tónlist og leikhús á Íslandi og í Þýskalandi 1920 - 1930
Inngangur 1)
Í þessari ritgerð munum við fjalla um tónlist og leiklist á Íslandi og í Þýskalandi á árunum 1920 1930. Við munum einnig fjalla um expressionisma og áhrif hans á tónlist og leiklist á þessum árum. Svo munum við að sjálfsögðu segja frá því hvernig expressionistar náðu heimsyfirráðum og hvernig þeim tókst að halda þeim völdum allt til dagsins í dag.
Við munum fjalla um nokkra íslenska og þýska listamenn, feril þeirra og áhrifin sem tónlist og leiklist höfðu á þjóðfélagið á þessum tíma.
Lokaorð 1)
Haustið 1920 hélt Stefanía Guðmundsdóttir (1876 16.janúar 1926) vestur ásamt þremur börnum sínum, Óskari, Önnu og Emilíu, og var þar langt fram á næsta ár í löngum leikferðum um Íslendingabyggðirnar.
Meðal þeirra heimamanna, sem tóku þátt í sýningum Stefaníu Guðmundsdóttur, var Ólafur Á. Eggertsson. Hann var mikill áhugamaður um leiklist og kom meðal.annars að starfi merkilegs kanadísks leikflokks í Winnipeg, "The Community Players of Winnipeg", sem var áhugamannafélag og helgaði sig verkum eftir skáld á borð við Ibsen, Shaw, Synge, O´Neill, Pirandello o.fl. Fjárgróðaleikhúsin á staðnum vanræktu þessi leikrit. Árið 1929 sýndi þetta félag Fjalla-Eyvind eftir Jóhanns Sigurjónsson í leikhúsi sínu "Little Theatre" undir stjórn Ólafs. Á þessum árum gekkst Ólafur fyrir sérstöku móti vestur-íslenskra leikflokka tvö ár í röð og segir það sína sögu um gróskuna á þessum vettvangi að slíkt skyldi vera hægt. Komu flokkarnir þá til Winnipeg og kepptu til verðlauna. Fékk Ólafur hagað því svo að hagnaður af þeim sýningum var lagður í byggingarsjóð íslenska þjóðleikhússins, auk þess sem hann bætti sjálfur við sínu eigin fé og nam gjöfin 2000 krónum.
Vitað er um rumlega 123 íslensk leikrit frá árunum 1880 1930, að minnsta kosti 60 önnur leikrit voru þýdd, en líklegast hafa þau verið fleiri þó ekki sé vitað fyrir víst. Flest frumsömdu leikritin eru glötuð, enda voru þau langflest einnota, skrifuð fyrir frumstæðar sýningar í fámennum bæjum og þorpum.
[link]Á þriðja áratugnum urðu revíusýningar mjög vinsælar í Reykjavík. Fáeinar tilraunir höfðu verið gerðar áður til að flytja háðleiki úr samtíðinni og er þar helst að nefna leik Einars Benediktssonar, Við höfnina, sem var sýnd í Breiðfjörðs-leikhúsi árið 1895, og Allt í grænum sjó, sem var sýnd í Iðnó árið 1913 og olli miklu fjaðrafoki. En ekkert framhald varð á þessum sýningum; Reykjavík var enn of mikill smábær til að þola svo hispurslausa umfjöllun um þekkta menn og málefni líðandi stundar. Það var helst að menn leyfðu sér að skopast að slíku í gamanvísum sem voru einkar vinsælt skemmtiefni á samkomum. Bæði Stefanía Guðmundsdóttir og Gunnþórunn Halldórsdóttir gerðu t.d. mikið að því að flytja gamanvísur á tímabili.
Árið 1922 samdi Páll Skúlason, sem nokkrum árum síðar stofnaði gamanblaðið Spegilinn og ritstýrði því í áratugi, revíu fyrir Tennisfélag Reykjavíkur, Boltinn með lausa naflann. Henni var vel tekið og réðst Páll þá í stofnun fyrirtækis, Reykjavíkurannáls, sem náði að setja upp sex revíur áður en áratugurinn var allur. Með Páli starfaði jafnan hó

ur höfunda og má þar einkum nefna Morten Ottesen, Gústaf Jónasson, Magnús Jochumsson, Reinholt Richter, Eggert Laxdal og Magnús Ásgeirsson. Leikendur voru einnig oftast hinir sömu: Friðfinnur Guðjónsson, Gunnþórunn Halldórsdóttir, Reinholt Richter, Rósa Ívars, Tryggvi Magnússon og Haraldur Á. Sigurðsson. Fyrsta revía Reykjavíkurannáls var Spánskar nætur (1923), "ársreikningur í fjórum liðum án fylgiskjala", sú síðasta Títuprjónar (1930) "safn til sögu Íslands og íslenskra bókmennta".
Revíur Reykjavíkurannáls höfðu venjulega einfaldan og losaralegan söguþráð og persónurnar voru hreinar skopfígúrur, oft sniðnar eftir þekktum borgurum; þegar ein persónan er t.d. nefnd Gorgur Kiljan Grímsness duldist engum hver átti sneiðina. Aðalpersónur voru oftast roskin hjón sem þau Friðfinnur og Gunnþórunn léku. Karlinn er betri borgari, braskari eða gróðamaður sem oftar en ekki hefur óhreint mjöl í pokahorninu. Þau hjón eiga dóttur sem ungur maður á uppleið vill ganga að eiga og er sá gjarnan úr alþýðustétt. Revíurnar endurspegluðu þannig hina nýju stéttaskiptingu samfélagsins, deildu á kunn hneykslismál og veltu sér upp úr bæjarslúðri. Þar var jafnan mikið um söngva og fóru sumir söngtextanna sem eldur í sinu manna á meðal, enda stíll þeirra fjölbreytilegur og oft hnyttilega að orði komist.
Starf Reykjavíkurannáls markar tímamót í íslenskum leikhúsrekstri að því leyti að hann er í raun fyrsti leikhó

urinn eða sjálfstæða leikhúsið, svo notað sé nútímalegt orðalag, sem hér kemur upp og heldur velli um árabil án opinberra styrkja. En hinar vinsælu revíur voru að sjálfsögðu ögrun og jafnvel ógn við Leikfélag Reykjavíkur og bætti ekki úr skák að þær fengu inni í því leikhúsi sem L.R. hafði setið nánast eitt að frá upphafi vega. Að sögn Indriða Einarssonar þorði félagið hins vegar ekki að leika revíur af ótta við að missa styrk úr landssjóði; "það gat ekki tekið uppá sig að reita þá, sem mestu réðu, til reiði við sig", skrifar Indriði. En L.R. datt brátt niður á snjallan mótleik sem voru farsar þýsku höfundanna Fritz Arnolds og Ernst Bach. Hinn fyrsti þeirra, Spanskflugan, var sýndur haustið 1926 og þegar næsta vetur kom sá næsti, Stubbur. Viðtökur leikhúsgesta sýndu að þarna var veðjað á réttan hest og árið 1940 voru farsarnir úr smiðju þeirra Arnold & Bach á sviði L.R. orðnir sjö talsins. Leikirnir voru langflestir þýddir og staðfærðir af hinum fjölgáfaða listamanni Emil Thoroddsen og fluttir undir stjórn Indriða Waage, frænda hans. Kröfuhörðum bókmenntamönnum þótti fæstum mikið til koma, en áhorfendur mættu í leikhúsið og borguðu miðana sína; það skipti máli fyrir fjárvana leikhús.
Herranótt:
Hjónaástir
1929/30
Ást og auður
1928/29
Töfrahringurinn
1927/28
Harpagon
1925/26
Pólitíski leirkerasmiðurinn
1924/25
Erasmus Montanus
1923/24
Ekki er allt gull sem glóir
1922/23
Hf. Reykjavíkurannáll:
Títuprjónar
1929/30
Lausar skrúfur
1928/29
Abraham
1927/28
Eldvígslan
1925/26
Haustrigningar
1924/25
Góður gestur
1922/23
Spánskar nætur
1922/23
Leikfélag Akureyrar:
Franska ævintýrið
1929/30
Tveir heimar
1929/30
Hrekkir Scapins
1928/29
Munkarnir á Möðruvöllum
1928/29
Sá sterkasti
1928/29
Ævintýri á gönguför
1927/28
Dauði Natans Ketilssonar
1927/28
Galdra-Loftur
1927/28
Á útleið
1926/27
Ambrosius
1926/27
Spanskflugan
1926/27
Kinnarhvolssystur
1925/26
Heimkoman
1925/26
Skugga-Sveinn
1925/26
Tárin
1924/25
Dómar
1924/25
Tengdapabbi
1924/25
Nýársnóttin
1923/24
Lénharður fógeti
1922/23
Vér morðingjar
1922/23
Litli hermaðurinn
1921/22
Kvöldið fyrir kóngsbænadag
1921/22
Bónorð Semings
1921/22
Fjalla-Eyvindur
1921/22
Drengurinn minn
1920/21
Ævintýri á gönguför
1920/21
Leikfélag Reykjavíkur:
Flónið
1929/30
Spanskflugan
1929/30
Hreisikötturinn
1929/30
Kinnarhvolssystur
1929/30
Lénharður fógeti
1929/30
Tartuffe
1928/29
Sendiboðinn frá Mars
1928/29
Sá sterkasti
1928/29
Föðursystir Charleys
1928/29
Andbýlingarnir
1928/29
Bandið
1928/29
Dauði Natans Ketilssonar
1928/29
Glas af vatni
1928/29
Nýársnóttin
1928/29
Villiöndin
1927/28
Schimeksfjölskyldan
1927/28
Ævintýri á gönguför
1927/28
Sérhver
1927/28
Skuggsjá
1927/28
Gleiðgosinn
1927/28
Stubbur
1927/28
Spanskflugan
1926/27
Á útleið
1926/27
Vetrarævintýri
1926/27
Ævintýrið
1926/27
Afturgöngur
1926/27
Tengdamamma
1926/27
Þrettándakvöld
1926/27
Munkarnir á Möðruvöllum
1926/27
Sex verur leita höfundar
1926/27
Dansinn í Hruna
1925/26
Gluggar
1925/26
Þrettándakvöld
1925/26
Dvölin hjá Schöller
1925/26
Á útleið
1925/26
Þjófurinn
1924/25
Candida
1924/25
Veizlan á Sólhaugum
1924/25
Stormar
1924/25
Einu sinni var
1924/25
Tengdapabbi
1923/24
Tengdamamma
1923/24
Fjalla-Eyvindur
1923/24
Fröken Júlía
1923/24
Skilnaðarmáltíð
1923/24
Ævintýrið
1923/24
Alt-Heidelberg
1923/24
Frú X
1922/23
Nýársnóttin
1922/23
Himnaför Hönnu litlu
1922/23
Ævintýri á gönguför
1922/23
Víkingarnir á Hálogalandi
1922/23
Ágústa piltagull
1922/23
Frú X
1921/22
Kinnarhvolssystur
1921/22
Ímyndunarveikin
1921/22
Vér morðingjar
1920/21
Fjalla-Eyvindur
1920/21
Kúgaður með tárum
1920/21
Heimkoman
1920/21
Litla leikfélagið (eldra):
Mjallhvít
1929/30
Þyrnirósa
1929/30
Heimildarskrá
[link]Takk aftur fyrir að lesa enn eina leiðinlega dagbók
--
*Bowling for Soup 4-ever!*
--
ДгТY−FOX
--
ДгТY−FOX
--
If you don´t belive, you don´t. If you do belive, it´s true.<3
--
If you don´t belive, you don´t. If you do belive, it´s true.<3
--
If you don´t belive, you don´t. If you do belive, it´s true.<3
--
If you don´t belive, you don´t. If you do belive, it´s true.<3
--
*Bowling for Soup 4-ever!*
It´s a beutifull drawing.
And I know how hard it is to draw in paint.
So keep it up and draw draw draw.
Previous Page123Next Page